K&S Skeggolía - Nordic Angan - Reykjavík

    K&S Skeggolía - Nordic Angan - Reykjavík

    5,900 kr.
    Tax included. Shipping calculated at checkout.
    VÖRULÝSING

    Þegar borgin vaknar af vetrardvala og allt iðar af lífi. Þegar vindurinn ber með sér ilm virsins og ísinn bráðnar í forminu.

    Þá er vorkvöld í Reykjavík.

    Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu samstarfi með Nordic angan, sem hefur fangað upplifun og ilm íslenskrar náttúru og komið í glös. Útkoman er töfrandi ilmheimur sem nærir líkama og sál. Innblásturinn eru staðir á Íslandi sem við öll þekkjum, elskum og eigum flest góðar minningar frá.

    Ilmprófíll:

    • 8% - Ástarleikir hrafna í háloftunum
    • 18% - Saltkaramelluís í vöffluformi
    • 60% - Öspin fyllir vitin af mjúkum balsamilm
    • 7% - Krókusar spretta við húsvegg
    • 3% - Hæg breytileg átt og bjartviðri
    • 4% - Vorlykt í lofti

    Skeggolía Kormáks & Skjaldar gefur skegginu frísklegt og gott útlit. Olían er unnin af Nordic angan, sem sérhæfir sig í ilmum og ilmtengdum upplifunum.

    Notkun: Klínið nokkrum dropum af olíunni í skeggið og nuddið vel. Á meðan skeggolían nærir skegg og húð leikurinn ilmurinn við vitin og sendir sálina á flakk um íslenska náttúru.

    Tengdar vörur

    BACK TO TOP