K&S Skeggolía - Fjallabaksleið

    K&S Skeggolía - Fjallabaksleið

    5,900 kr.
    Tax included. Shipping calculated at checkout.
    VÖRULÝSING

    Hálendið fyllir vitin og ekkert liggur á. Fjallið gnæfir yfir og dalalæðan leggst í hvilftirnar. Svalandi sopi og beiskt bragð í munni.

    Þetta er Fjallabaksleið.

    Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu samstarfi með Nordic angan, sem hefur fangað upplifun og ilm íslenskrar náttúru og komið í glös. Útkoman er töfrandi ilmheimur sem nærir líkama og sál. Innblásturinn eru staðir á Íslandi sem við öll þekkjum, elskum og eigum flest góðar minningar frá.

    Ilmprófíll:

    • 12% - Fjallaloft
    • 8% - Mistur
    • 22% - Fjalldrapi
    • 8% - Lyng
    • 3% - Þvöl lopapeysa
    • 23% - Blóðberg
    • 3% - Mosi
    • 14% - Ískalt jesúlaði
    • 7% - Beiskur brjóstsykur

    Skeggolía Kormáks & Skjaldar gefur skegginu frísklegt og gott útlit. Olían er unnin af Nordic angan, sem sérhæfir sig í ilmum og ilmtengdum upplifunum.

    Notkun: Klínið nokkrum dropum af olíunni í skeggið og nuddið vel. Á meðan skeggolían nærir skegg og húð leikurinn ilmurinn við vitin og sendir sálina á flakk um íslenska náttúru.

    Tengdar vörur

    BACK TO TOP